Yanmar-logo2.jpg

Yanmar fyrirtækið er yfir 100 ára og einn þekktasti framleiðandi dieselvéla í heiminum, bæði lítilla og stórra. Beltagröfurnar frá Yanmar hafa í áranna rás sannað ágæti sitt hér á landi, hagkvæmar í rekstir, áreiðanlegar og þægilegar. Yanmar er brautryðjandi í ZTS tækninni sem er Zero Tail Swing, þar sem afturendi vélarinnar er alltaf innan beltanna þegar henni er snúið. Á síðustu árum eftir kreppu hefur Yanmar hafið framleiðslu á nýjum módelum beltavéla. Þessar vélar eru meira og minna með nýja og endurbætta tækni, eins og vökvakerfi, dieselvél og aðbúnað stjórnanda. Eigum ávallt til á lager ýmis Yanmar tæki.