Himoinsa rafstöðvar og ljósamöstur.

Himoinsa er eitt af dóttur fyrirtækjum Yanmar. Rafstöðvarnar eru einstaklega hljóðlátar, meðfærilegar og með stórum eldsneytistanki. Hægt er að útfæra rafstöðvarnar á ýmsan hátt eða eftir óskum kaupanda. Einnig er til gott úrval af þriggja fasa rafstöðvum á lager.

Einnig fást hjá okkur ljósamöstrin frá Himoinsa sem hafa komið mjög vel út á Íslandi, bæta vinnuaðstöðu og auka öryggi yfir dimmustu mánuðina.

FG Wilson

FG Wilson var stofnað 1967 í Belfast og fór öll framleiðslan fram þar. Seinna var aðalframleiðslan flutt til Lame þar sem hún er nú. FG Wilson framleiðir staðlaðar stöðvar upp í 2500 kVA og þaðan af stærri í sérstökum útfærslum. Rafstöðvarnar fást opnar, yfirbyggðar með hljóðeinangrun eða í verksmiðjusmíðuðum ISO gámum af ýmsum stærðum. Við erum yfirleitt með stöðvar frá 35 – 150 kVA á lager.

í flestum tilfellum eru rafstöðvarnar frá FG Wilson notaðar sem varaaflsstöðvar eða ljósavélar eins og þær voru gjarnan nefndar hér áður fyrr og eru þá sniðnar að þörfum viðskiptavinarins. Tæknilegar útfærslur, uppsetningar og frágangur í samstarfi með snillingunum í Hafás.

Nokkrir viðskiptavinir: Akureyrarflugvöllur, Egilsstaðaflugvöllur, flugvöllurinn í Hornafirði, þjónustuskáli Alþingis, neyðarlínan og slökkvistöðin í Skógarhlíð, Reiknistofa bankanna, Reiknistofa Háskólans, Sjúkrahúsið á Sauðárkróki. Hitaveitur, rafmagnsveitur, vatnsveitur, bankar, bændur og verktakar.

FG Wilson er í dag hluti af Caterpillar samstæðunni.

Mase

Mase er ítalskur framleiðandi sem hefur verið á íslenskum markaði í tæp 40 ár. Þessar rafstöðvar eru mjög meðfærilegar og þægilegar. Við eigum ávallt á lager rafstöðvar frá 5-50 kVA.