VemaTrack er hluti af rúmlega 60 ára gömlu fjölskyldufyrirtæki, Verhoeven International, sem stofnað var 1957.

VemaTrack var stofnað 2007 til að mæta vaxandi eftirspurn eftir hágæða undirvagnsíhlutum á samkeppnishæfu verði. Fyrirtækið byrjaði sem lítið sprotafyrirtæki stofnað af ungum frumkvöðlum.

Í dag er VemaTrack gæðamerki sem einbeitir sér að framleiðslu á hágæða íhlutum fyrir undirvagna sem standast hæstu gæðakröfur og eru ætlaðir til vinnu við krefjandi aðstæður.

Við eigum alltaf til á lager helstu stærðir af gúmmíbeltum, og ef við eigum þau ekki til þá er mjög stuttur afgreiðslutími frá birgjanum okkar í Hollandi.

Við getum boðið flesta íhluti fyrir undirvagna á flestar vélar á Íslandi og á mjög samkeppnishæfum verðum!

Ef þig vantar tilboð í gúmmíbelti eða undirvagna ekki hika við að hafa samband við varahlutadeildina!